Bloggleysi - framhaldssagan miklaEcuador
Vá þegar neyðin er mest spinn ég nakin, eða blogga allavega hér. Ég er virkilega að farast úr þörf fyrir að blogga stelpur.Ég er búin að googla "blog software" í viku, lesandi greinar og lærandi ný hugtök dag eftir dag til þess eins að komast að því að hýsingin mín er drasl og er ekki með þann grunn sem þarf til að nota 90% bloggkerfanna sem eru í boði í dag.
Ég er uppá Seltjarnarnesi með Krumma í einbýlishúsi hans, sambýlingarnir og hundurinn farin að sofa en við tölvunördaparið sitjum með sitthvora fartölvuna og hlustum á Shadow Parade.
Sýndi honum aragrúa ferðamynda frá Interrailinu í sumar. Við Ylfa þyrftum að sýna ykkur stelpunum myndirnar okkar og Birgitta, mig langar að sjá myndir frá Ecuador. Sérstaklega í ljósi þess að myndirnar á herra-alheimi didn't do justice þessum gaur þarna ;-)
En jæja nú líður mér aðeins skár, bloggþarfarlega séð svo ég hlýt að halda þetta út þessa næstu daga þar til ég get komið mér upp mínu einkabloggkerfi.
Adiós, hasta pronto!
BloggleysiEcuador
Jæja stelpur ég nenni ekki að skrifa þessa færslu á spænsku og skrifa af algjörri bloggneyð. Ég náði einhvernveginn að eyða einhverri skrá, eða eitthvað, sem varð til þess að bloggið mitt virkar ekki og bróðir minn svarar hvorki emailum né msni, þannig að ég er að deyja úr net-tjáningarþörf.Það var gaman að sjá ykkur á laugardaginn, væri gaman að gera eitthvað sniðugt á næstunni, langar ykkur ekki að jólaföndra/baka saman?
Gætum líka haft smáköku-skipti, bakað ógeðslega mikið af einni sort hver, og svo skipst á tegundum.
Ég veit ekki afhverju en ég er með hugann mikið við jólin í dag. Þó það sé bara 1.nóv ..sorry, ég veit, þetta er allt of snemma. En tilhugsunin um kósý jól í eigin íbúð í 101 er svo notaleg. Teppi, heitt kakó og smákökur yfir sætri bíómynd.
Mig langar að vita hvað er í gangi hjá ykkur.. í dag var ég sjálf að skila stóru verkefni í þrívíddarteikningu.. skilaði húsi sem ég bjó til fyrir síðasta verkefni með áferðum. Fór og tók myndir af húsveggjum, gamalli málningu og setti spes áferð á veggi, tröppur, hurðir, glugga, gras og himinn..
Bueno, hasta pronto, Lora
LA COMPETENCIAEcuador
Oh it´s on...!!
Jajaja ok, acá tengo el "link" para la página de Mr Universo PERO para que lo sepan... mér finnst þetta nú ekkert spes myndir af honum! Eiginlega bara frekar skrýtnar (hálf ljótar
ljósmyndarinn var ekki að vanda sig við að ná góðum myndum) http://www.feliperecabarren.com/
Pero tenemos que encontrar un lugar en dónde van a mostrar la competencia para ver, no??
Pero nenas, miren el mr. Argentina..... p**a madre!!!! Guao!
Bueno, ya me despido.....................................
Prófatörn y Mr. UniverseEcuador
Hola nenas que fue??!!
Todavía siguen siendo vagas.. no escriben nada, a parte de Lora que escribió 2 veces en un día... bien hecho ![]()
Todo sigue igual en mi vida; clases, biblioteca y casa... y de vez en cuando; trabajo... (Snæland Video Reykjavíkurvegi si me quieren visitar alguna vez
)
En la semana que viene empiezo exámenes.. el 3 de octubre y estaré más o menos ocupada hasta los exámenes finales.
Ay! Suficiente de los estudios... a nadie le interesa esto !
Hablando de otras cosas;
Tenemos que ver que canal muestrará Mr. Universe porque parece que Adrián si va a salir en este concurso/esta competencia... (no sé cuál se usa)
Ya está entrenando fuerte y bronzeandose para que se vea bien cuando saldrá. Me dijo que sería en octubre entre el 20 a 27... no estaba seguro. Lo que necesitan es plata, para ir, pero dijo el director (que le manda) que si van a tenerla y que si va a ir.
Saben que estoy muy emocionada por él porque es una gran oportunidad para él! Si le sale bien va a poder trabajar como un modelo jajajaj
Bueno, el sábado es la fiesta de Lora, no?? Y también voy a Þingvellir con Atlantsskip... será bacán :)
Yaaaaa, estoy demasiado cansada. Estoy escribiendo huevadas! Me voy a acostar...
BESOS
Já og varđandi útlitiđ..Ecuador
Ætla nú ekki að frekjast með þetta nema ég bara gat ekki lesið það sem stóð á blogginu, mætti alveg bara fínstilla það, en þangað til situr þetta bara :P -metnaðarleysi mitt til fyrirmyndar!Kv Lora
Loksins kemst mađur inn!Ecuador
Já stúlkur, það verður nefnilega að hafa fyrsta staf stóran í lykilorðinu. Skamm Birgitta fyrir að feila á því að senda okkur rétt.. en þrefalt hrós fyrir að koma þessu af stað og blogga nú þegar.Ég ætla allavega að bookmarka þessa síðu og styðja þetta framtak til að heyra um hvað þið eruð að gera.. æji, ég er samt svo fjarri því að vera bloggari þessa mánuðina. Hreinlega fæ í magann við tilhugsunina..
Sit í tíma núna og á að vera að gera flash-teiknimyndakall sem labba um skjáinn þegar maður ýtir á takka og sona. jibbíjei! Fer svo að vinna við úthringingar á hagstofunni eins og mér einni er lagið..
Hvað er annars málið með svona lægðir? Fara alltaf beint í skapið á mér þessi rigningaþrýstingslægðaógeð. Flytja bara til útlanda, held það sé svarið!
Kv Lora
Ekki gott!Ecuador
Stelpur!! Hvað er málið??Þið verðið að vera duglegar að kommenta eða skrifa svo þetta hætti ekki áður en það byrjar. Það tekur ekkert svo langan tíma að skella einni færslu inn ......
Frekar viðburðasnauð vika hjá mér, það er vonandi að sú næsta verði betri hehe
Fer að byrja á hraðlestrarnámskeiði. Er að vonast til að komast upp í 2000 orð á mínútu
Jamm og já.... uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu já... nú er komið að ykkur að skrifa. Þið megið ráða hver það er
Ég ætla að lesa meira um "efndir in natura" ...
Góðar stundir.
CHUCHAQUIEcuador
Jæja, fyrsta færslan!! Vúhú!Það er nú ekki enn komið hópblogg-kerfi á þessu bloggar.is en það er víst í bígerð... Ég er búin að senda ykkur sms með notendanafni og lykilorði þannig að hver ein og einasta getur bloggað þegar henni dettur í hug ;)
Ég var að reyna að setja inn myndir en það gekk nú ekki. Hmmm, vona að það gangi næst þegar ég reyni!
Anywhooo, þá ætla ég bara að láta þetta duga í bili og vona að þið verðið duglegar að skrifa hérna. -já og muniði að kvitta í lok hverrar færslu svo við vitum hver skrifar
Hasta luego nenas,
Birgitta
